Ađalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Ég er mćtt!!

06. janúar 2010 klukkan 15:00
Ég er búin að vera í námsleyfi í vetur og er á fullu  í meistaranámi kennslufræða stærðfræðinnar. Ég hélt að þetta yrði mikil vinna en ég hafði rangt fyrir mér.... þetta er hrikalega mikil vinna.
Börnin eru orðin stærri og fallegri, hafi það verið hægt og við hjónin erum enn stór og falleg.
Skrifa fljótt aftur.

Fćrslur sjást ekki

16. maí 2009 klukkan 01:27
Síðasta færslan mín sást ekki á síðunni. Kannski þessi ekki heldur. Það verður spennandi að sjá.

Sannur Íslendingur

11. maí 2009 klukkan 23:41
Íslendingar vilja hafa mikið að gera. Ég er eins og flestir með það. Þetta ár hefur reyndar verið í fjörlegri kantinum. Þorrablótsnefnd, ferming, öldungamót í blaki... ég hætti reyndar við að taka þátt í uppfærslunni á Carmina Burana.... sem betur fer. Ég hafði alls ekki tíma í það. Mér líður bara vel með þetta allt. Kannski snýst þetta allt um það að skapa sér nafn á nýjum stað. Núna vita flestir á Héraði að mér líður vel á sviði, er í íþróttum og hef gaman af söng. Á gamla staðnum vissu þetta allir og gerðu ráð fyrir þessu. Hér get ég komið á óvart, en það er heldur lítið um væntingar finnst mér. Ég vil kröfur á mig, og geri þær sjálf líka.
En mér er alveg sama þó ég þurfi ekki alveg strax að fara að vinna í garðinum.

Febrúar er mćttur

05. febrúar 2009 klukkan 11:28
Febrúar er búinn að vera kaldur. Ég með drullukvefpest, hálsbólgu og slappleika síðan fyrir þorrablót. Það heppnaðist reyndar mjög vel... þorrablótið meina ég ... ekki slappleikinn. Ég er að fara á litla blótið annað kvöld, Einar Bjarni fer í hæfileikabúðir í blaki um helgina, Jóhann fer í gistingu og fær síðan gest í gistingu. Það er nóg að gera.
Þar til næst.

Enn á lífi

22. janúar 2009 klukkan 11:08
Ég er enn á lífi, bara þreytt

Ef maður er í þorrablótsnefnd er gott að:
- geta brosað allan daginn
- vera ligeglad
- vera jákvæður
- eiga börn sem geta hugsað um sig sjálf
- eiga börn sem finnst gaman þegar mamma er ekki heima
- eiga góðar mágkonur sem hugsa um börnin fyrir mann
- eiga eiginmann sem er dásamlegur

Þar til næst

Ég er upptekin

20. janúar 2009 klukkan 11:41
Ég er mjög upptekin þessa dagan. Ég er í þorrablótsnefnd og geri ekkert nema það og vinna og sofa. Svona er það búið að vera í þrjár vikur samfleytt. Þetta er stanslaus gleði öll kvöld og nefndin skemmtir sér í topp. Börnin eru á vergangi og breiða sjálf yfir sig á kvöldin. Þeim finnst það reyndar fínt, fá að ráða yfir fjarstýringum og tölvum heimilisins eins og þeim sýnist.
 Skrifa aftur eftir blót (sem er núna næsta föstudag)

Fullorđinn

13. desember 2008 klukkan 20:49
Þá er Hákon orðinn 18 ára og löglega fullorðinn. Í tilefni dagsins var haldin heljarinnar vöffluveisla. Núna eru allir afvelta eftir átið og hvíla sig við sjónvarpið. Pabbi eldaði silung, en í þetta sinn kláraðist ekki allt sem eldað var og er það vísbending um hversu vel saddir allir voru eftir veisluna. Ökklinn er enn skrautlegri en síðast þegar þið heyrðuð frá mér. Ég held jafnvel að ég geti sleppt því að setja upp jólaseríur inni, blessuð löppin lýsir allt upp.
Segir sú sem haltrar ekki en er SAMT slösuð.

Á ađventunni

12. desember 2008 klukkan 08:37
Mér tókst að snúa mig um síðustu helgi, og þá meina ég á ökkla. Núna er mér ekki lengur illt en ég er komin í jólalitina. Af þessu tilefni fæ ég að leggja bílnum mínum nær skólanum en venjulega, núna þarf ég bara að labba úr Koltröðinni en ekki utan frá Eiðum... eða næstum því... ég veit ég er að ýkja en það er fáránlegt að hafa ekkert pláss við skólann til að geyma bíla. Ég er búin að vera dugleg að ganga til vinnu í haust og er svo sem ekki svo lengi að því. Það tekur a.m.k. styttri tíma heldur en að skafa af bílnum, keyra út fyrir íþróttahús og ganga svo hálfa leið til baka í skólann.
Þar til næst

Silkitoppa og afmćli

01. desember 2008 klukkan 23:26
Í dag á miðjubarnið mitt afmæli. Hann er 13 ára. Í tilefni fullveldisdags Íslands mætti hann í skyrtu í skólann. Sem betur fer var allur almenningaru í skólanum meira og minna fínt klæddur, annars hefði þetta orðið vandræðalegt. En annars, hann er að verða jafn stór mömmu sinni... og er hún þó nokkuð hávaxin.
Í gær var haldið heljarinnar rjómatertupartý. Hápunktur veislunnar var er nokkrar silkitoppur sáust í garðinum. Þá var undirrituð einmitt að kenna dóttur sinni (í gegnum síma) að reikna út hversu langan tíma tekur að ríða 50 metra á tölti, ef tölthraðinn er um 10 km/klst. Síminn þvældist fyrir kíkinum, og kíkirinn fyrir símanum, svo að húsmóðirin var heppin að hengjast ekki í tækjunum við þessar athafnir.

Silkitoppa. Mynd: Hrafn Óskarsson.

Facebook er máliđ

25. nóvember 2008 klukkan 10:02
Nú er maður kominn á fullt í Facebook á netinu. Það er víst enginn maður með mönnum nema eiga Facebook. Aðalsteinn er líka á Facebook og við hittumst stundum þar. Ein góð nágrannakona mín sagði mér nú reyndar að það væri ekki gott að hitta manninn sinn bara á netinu, svo ég verð að passa mig að heilsa honum þegar hann kemur heim.

Könnun

Hversu mikil útilegufrík ert ţú?